Aðalvalmynd

Verið velkomin fallega fólk.

Hér mun aðalega fara fram útskýrngar á hegðun og skoðunum mínum. Hér ertu velkomin að tjá þig um hlutina hvernig sem þeir liggja.
Ég er hin undurfagra og ómótstæðilega Lára. Ég bý í Grungarfirði með mínum heitelskaða Jón Frímanni sem heldur sig aðalega á sjónum. Ég á mér einn stelpu engil sem er fædd í Júlí 2005, hana Kolbrúnu Líf. Við Jón eða Nonni eins og ég kýs að kalla hann eigum svo von á engli saman núna í Águst 2007.

Hér er rosa sport að kommenta og spjalla um heima og geima á spjall-kubbnum. Endilega vertu með!

Auglýsing

Kolbrún Líf 3ja ára

Eiríkur Frímann 1 árs

Leikur dagsins

Pása hérna!

30. september 2008 klukkan 13:41
Ég hef ákveðið að taka smá pásu hérna.


Ég er með átaksblogg fyrir sjálfa mig að mestu.. og einbeiti mér að því þessa dagana.

Ég ætla að sjá til hvort ég hendi inn hingað smá fréttum öðru hverju

Mínir allra nánustu og þeir sem ég vilja fá leynið á átaksbloggið... þar verða persónulegar upplýsingar og slíkt og þeir sem fá aðgang eru bundnir þagnar eið OK?

www.123.is/lara

Prufaðu að spurja ég hleypi þér kannski að.. en ekki vera fúl/fúll ef ekki....
Svo gæti vel verið að þegar ég hef náð ákveðnum árangri að ég opni bara fyrir öllum til að sýna hvernig búið er að ganga.

Ein í kotinu...

21. september 2008 klukkan 09:58
.. jæja nú erum við orðin ein í kotinu. Nonni fór á sjóinn á miðnætti.

Nammidagurinn búinn, já hann var í gær, og nú er bara að halda áfram í viku 2. Ég er staðráðin í að standa mig. Ekki fyrir neinn nema sjálfa mig.

England var æði. Við vorum í London yfir helgina en ég verð að viðurkenna að borgin heillaði mig ekki. Við fórum svo á sunnudeginum til Rögnu í Poole sem er bara frábær strandbær sunnalega á Englandi. Þar var mest slakað á en öfulítið verslað. Tekið eitt djamm í Poole og eitt í London. Sjaldan verið eins þunn og eftir London djammið og mætti frekar þunn til Rögnu sem tók það náttla ekki í mál og skellti í mig einum bjór og VÁ hvað það virkaði.. hefði aldrei dottið það í hug.

Komum heim á sunnudeginum í grundó en fimmtudeginum á ísland. Gott að koma heim og gott að fá englana sína í hendurnar aftur.

Eirík gengur rosalega vel á leikskólanum en þau eru bæði núna bara til 14.00 til að eiga meira tima með þeim og þau saman. Okkur finnst það æði.

Tommi Hommi klukkaði mig!

19. september 2008 klukkan 19:15

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:


1. Dvalarheimili Borgarnes
2. Hyrnan
3. IKEA
4. Leikskóla í RVK

Fjórir staðir sem ég hef búið á:


1. Akranes
2. Ísafjörður
3. Borgarnes
4. Reykjavík

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:


1. Notting Hill
2. Bring it on
3. Mýrin
4. Hott Fuss

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:


1. ANTM
2. Gray´s Anatomie
3. C.S.I allir
4. Lipstick jungle

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:


1. Tenerife, Spáni
2. Rimini, Ítalíu
3. Köben, Danmörku
4. London, Englandi

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

1. visir.is
2. er.is
3. kolbrunlifogeirikurfrimann.barnaland.is
4. mbl.is

Fernt sem ég held uppá matarkyns:


1. Grænmeti
2. Fiskmeti
3. ávextir
4. vel eldað lambakjöt

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

Hef ekki lesið neina bók oftar en einusinni (nema þá barnabók)
1.
2.
3.
4.

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

María Ósk
Rósa
Elín Birna
Hrund

Ekki morgun heldur...

03. september 2008 klukkan 07:40
Jááááá... Ég er að fara til útlanda ekki á morgun heldur hinn... Var það nokk búið að fara fram hjá einhverjum.

Ég er annars búin að vera tölvulaus í 3 daga og ég var að fara yfirum ... hehe nei nei alls ekki nebbla. Fæ bara hærri símareikning þar sem ég lá bara í símanum hehe..

Eiríkur er byrjaður á leikskólanum, byrjaði í aðlögun á mánudaginn og gengur líka svona rosalega vel.

Ég er komin með vinnu. Já það var var hringt í mig úr grunnskólanum og mér boðin forfallakennsla. Það verður athyglisvert og hlakkar mig mikið til. Oft velt því fyrir mér hvort ég ætti að læra kennarann en ekki verið viss... Núna fæ ég smá innsýn inní þetta starf og svo sjáum við til :)
Fyrsti dagurinn er á morgun en þá kenni ég frá 8-12.30 :o hehe já skrítið að segja þetta.. ég sé að fara að kenna. En það er nú búið að undirbúa þetta allt saman fyrir mig svo þetta er bara eins og að passa greyið krakkana og sjá til þess að þau geri það sem þau eiga að gera.

Ég byrja svo alennilega þegar ég kem heim. Ég held að fiskurinn verði bara að bíða eftir mér örlítið lengur hehe...

Læt þetta vera gott í bili...
(ætla með tölvuna til Tomma og láta hann setja einhver almennileg forrit í þessa B-vítans tölvu)

London

19. ágúst 2008 klukkan 12:26
Jááááááááá ég lét það eftir okkur.... Níska ég.... ég vill ekki eyða 1 krónu umfram þessa dagana en er samt alveg búin að gera það... allir eru að fara til útlanda og þá verð ég líka heheh

Við förum til London 5 sept og komum heim 11 sept. Eiríkur verður byrjaður í leikskólanum svo þau verða hjá Adda og Eygló.

Veiii þetta verður geggjað

óskið mér til hamingju

Daglegt brauð

13. ágúst 2008 klukkan 14:45
Þá er að spíta í lófana og koma sér í einhverskonar skipulag.

Nonni kom í land aðfaranótt þriðjudags og fór svo aftur út núna klukkan 13.
Hann kemur sennilega ekki í land fyrr en á mið eftir viku, en það fer náttla allt eftir fiskiríi.

Dönsku dagarnir eru um helgina og er ég mikið að spá að fara á þá. En þá auðvitað að keyra bara á milli. Fer varla ú útilegu með krakkana í næsta bæ hehe...

En eftir helgina ætlum við að fara suður. Ég er að hugsa um að vera e-ð fram í vikuna. Langar svo að hitta allt fólkið mitt fyrir sunnan. Langt síðan ég hef hitt ömmu og Gulla bróðir, allar vinkonur mínar fyrir sunnan og Birnu sem var að rófubeinsbrjóta sig. Hún er náttla bara snilli hehe..
Ég er svo til í að hitta alla þannig ef þú hefur tíma í að hitta mig þá er ég game!

Svo er bara að koma heim eftir rvkið og koma öllu í fasta skorðu. Stefnan er að Eiríkur byrji um mánaðamótin í leikskólanum og svo ég vonandi að vinna fljótlega eftir það. Á eftir að tala við hana Rósu mína betur....

Ég er á lífi!

10. ágúst 2008 klukkan 18:05
Vá hvað mig langar til að snúa blaðinu við.
Ég er sífellt étandi og það allt óhollt.
Þetta sumar er búið að vera æði. Við erum sko búin að ferðast og hafa það gott.
Við fórum á Drangsnes, Vestfirði, Akureyri og í sumó í Norðurárdalin svo e-ð sé nefnt að ógleymdri Grundarfjarða hátíð sem tókst ótrúlega vel.
Nú er Nonni farinn á sjóinn aftur eftir að hafa verið mikið heima í sumar. Hann tók slatta af fæðingarorlofi og svo voru teknar langar helgar á meðan vinnslan var í fríi. En núna eftir tæpa viku ætlar Rósa mín að opna aftur og þá vantar hana fisk og því eru ekki stopp nema í sólahring. Næsta verður meir að segja sennilega bara 6 tímarnir þar sem þeir verða að fiska í húsið sem opnar 18 águst.

Eiríkur tók uppá því að byrja að labba í dag, svona rétt áður en pabbinn fór á sjóinn, til að sýna honum að hann gæti þetta alveg. Enda er pabbinn líka búinn að pressa svoldið á soninn sem stoppar ekki núna ÚFFFFF... ég hlýt að verða mjó núna þegar ég hætti að éta grill og nammi og byrja að hlaupa á eftir þeim báðum.

Kolbrún er sko svoooo stollt af litla bróður. Alltaf þegar hann tekur á rás kallar hún upp fyrir sig MAMMA MAMMA sjáðu Eirík hann labbar hehe... bara sætt.
Ég kom að henni áðan á dollunni með séð og heyrt og var að vesenast í að flétta og tala bróður sinn til svo hann færi útaf klósettinu þar sem hún væri að kúka. Já þetta lærir hún af pabba sínum. Þar sem ég neyðist oft til að taka guttann með mér á klóið og líka Kolbrúnu þegar hún var yngri þá er Nonni ekkert alveg að fatta þetta og fílar ekkert rosalega að hafa þau á lærunum á sér þegar það er verið að skila af sér hehehe... æi mér finnst þetta bara fyndið.
Kolbrún byrjaði aftur í leikskólanum eftir sumarfrí á fimmtudaginn. Vá hvað henni leið vel að komast í burtu frá mömmu sinni. Hún er búin að vera "heima" í 5 vikur og var alveg komin með nóg. Hún talar t.d ekki um annað í dag en að fara í leikskólann á morgun hehe.. strax komin með leið aftur eftir helgina :s

Jæja það er svo sem ekki mikið annað af mér að frétta já og okkur.
Ég ætla að reyna að vera duglegri við að blogga og þá aðalega fyrir mig. Finnst voða gaman að lesa yfir gamlar færslur þar sem ég er svo gleymin.

Kveðja

Loksins e-ð að gerast!

02. júní 2008 klukkan 21:53

Jæja...

Ég er ekki enþá búin með vorhreingerninguna og það er komið vel inní sumarið...

Enda mikið búið að gerast síðan ég ætlaði að vera svona dugleg að þrífa. Eða ég finn mér e-ð annað að gera, já ég meina hverjum finnst gaman að þrífa!!! RÉTT UPP HENDi.... mín er undir rassinum

Gulli gifti sig :o aha hann er genginn út stelpur SORRY hehe.. æðislegt brúðkaup og vá hvað ég var stollt af brósa. Helga var líka gullfaleg eins og allur dagurinn...

Eiríkur er útum allllllltt ég meina það... farinn að standa upp og læti.
Kolbrún orðin svo fullorðin e-ð. Talar bara við mann eins og manneskju og er farin að segja errrr eins og fullorðin manneskja.. Vá hvað ég elska að sjá hvað þau dafna. Kolbrún er algjör mömmu stelpa á meðan Eiríkur er algjör pabba kall.

Ég komin með vinnu í sumar í 6 vikur. Vantar bara einhverja góða stelpu að passa fyrir mig á meðan. Ég verð með leikjanámskeið fyrir krakka á aldrinum 1-10 í 2 hópum. Vá hvað mig hlakkar til :)

Núna er bara ekkert annað að gera en að vera úti að leika og næst á dagskrá er að slá  og klára beðin ;)

Jæja núna vitiði að ég er á lífi og María mér finnst að þú eigir að vinna sjálfboðavinnu í sumar og það að þrífa heima hjá mér.....

Vor hreingerning..

02. maí 2008 klukkan 17:26
Jæja þá!

Stofan er búin og eldhúsið hálfnað. Svo sem ekki mikil hreinsun í gangi en bara þetta sem maður gerir ekki þessum venjulegum þrifum. T.d leggjast á fjórar fætur og fara vel í öll horn og svona. Eins og draga sófan fram og skúra undir honum og svona... Rosa stuð.

Eiríkur er kominn með tönn númer 2. Hún kom í gær. Við rosa stollt. Hann er gjörsamlega á fleyi ferð hérna útum allt hús, hvort sem það er á rassinum eða í grindinni. Algjört met þetta barn.

Við förum suður á föstudaginn. Farið að hlakka til að sjá allt fólkið sem maður er ekki búin að sjá síðan í febrúar. Ég ætla í leikhús á föstudagskvöldið, ætla að sjá Ladda. Ég á tvo miða og ef Nonni verður í landi þá kemur hann með en ef ekki þá verð ég bara að finna einhvern annan til að koma með mér.
Á laugardaginn er plan að leika við Svenna kall og auðvitað Helgu og jafnvel fara í dýragarðinn. Kolbrún talar mikið um það hvað var gaman að hafa Svenna hjá sér og lúlla með honum þannig það getur vel verið að maður bjóði honum að gista hjá ömmu með Kolbrúnu.. Það kemur í ljós. Á sunnudaginn er svo barnaafmæli hjá vinkonu minni. Svo er bara heim. En við verðum ekki lengi heima ef allt gengur eftir. Það er plan að hittast árgangurinn 17 maí við eigum 10 ára fermingar afmæli :o (eruði að grínast hvað tíminn líður hratt) eða laugardeginum eftir. Svo helgin eftir það er bara brúðkaup. Svo er sjómannadagurinn og svo er bara komin Júní. Svo er Svenni 3ja ára og brúðkaup líka en bíst ekki við að fara í brúðkaupið þ.e ef Nonni er útá sjó. En í afmæli til Svenna kalls :)

Já svo er bara útileigur og fínirí ;) Ættarmót og svona JIBBÝ ....

Jæja þetta er ágætist pistill...

seinna...

Frestun!

30. apríl 2008 klukkan 10:06

Námskeiðinu var frestað þar til á mánudaginn 5 maí. Allir sem eru ekki búnir að skrá sig gerið það núna. Ég mæli með þessu námskeiði.

Eiríkur er komin með tönn. Ég held að tönn númer 2 sé að kíkja líka. Hann er líka farinn að "skríða" nema ekki á 4 fótum.


Nonnu er búinn að vera heima í viku, bara næs. En hann er að fara út á eftir :(

Gulli, Helga og Svenni voru hjá okkur um helgina. Og það var bara gaman. Fórum í afmæli hjá Jóni hennar Ingu Jónu á laugardaginn og svo á ball. Rosa stuð.

Nú styttist óðum í brúðkaupið hjá þeim leysum. Steggjun og gæsun á næsta leyti. Hehe það er bara gaman að gera gera einhvern skandal fyrir brúðkaupið sitt hehe!!!!!

Annars var ég að fá 2 einkunnir í viðbót. Fékk 9,0 fyrir ritgerðina mína og svo 8,8 í goðafræðiprófi. Bara sátt

gott íbili

Bless

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...